Aumingjar mótmæla

Enn og aftur tekst þessu liði að koma óorði á mótmæli. Þessi skríll er svo heimskur að það eru mött í þeim augun og ef svo mikið sem ein hugsun fer í gegnum hausinn á þessu pakki, þá þarf það verkjatöflur.

Ekki nóg með að skemma eignir annarra, þá skemmdu þeir líka dagskrárlið sem fjöldi fólks hefur fylgst með árlega. Ef þau eru spurð að því af hverju, þá verður fátt um svör, en nokkrir þurfa þó væntanlega verkjalyf eftir að reyna!

Því miður var stöð 2 það eina sem var tekið úr sambandi í dag, en væri svona heiladautt lið tengt við einhverjar vélar, þá væri löngu búið að taka þær úr sambandi og veröldin væri betri á eftir.

Gleðilegt ár!


mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, takk sömuleiðis

Það eru ekki falleg jól sem þú, þín fjölskylda og ykkar líkar hafa skapað íslenskum almenningi.

Eitthvað segir mér samt að þið séuð betur í stakk búin til að halda þau en margur íslendingurinn. Njótið því vel eftir því sem samviskan leyfir.

Gleðileg jól


mbl.is „Dapurleg jólagjöf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt Davíð að kenna...

Nú byrjar enn sama sönglið í eymdarkórnum hér á blogginu, sem hefur fundið tóninn hvort hjá öðru með mjóróma væluröddum sem endurkastast eins og bergmál á milli blogganna þeirra í aðdáunarkommentum yfir snilli hvers annars í vælulistinni:

Búhú, þetta er allt Davíð að kenna, hann spáði þessu


mbl.is Raunverðlækkun húsnæðis 17%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir búa bara til fréttir

Á það að sýna fram á einhvern áreiðanleika miðilsins að þeir hafi getað birt það sem í þá var lekið? Hvað með allt sorpið sem þeir hafa birt um óeirðalögregluna, dauða lögregluhundinn og fornbíl lögreglunnar? Og allan hinn sorann sem þeir hafa skrifað ógagnrýnið á líðandi stundu án þess að kanna baklandið nánar?

Þetta er og verður ótrúverðugur miðill og ég er sannfærður að hann er að þjóna einhverjum einkahagsmunum.


mbl.is Blaðamenn DV búa ekki við ritskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heil Hörður

 Öfugt andóf eftir jól, já? Æi... haltu þig nú heima eftir jólin líka. Við þurfum ekki meira frá þér í bili!
mbl.is Öflugt andóf boðað eftir jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nætur-Össur

Af hverju vissu prinsar Samfylkingarinnar ekki neitt um ástand bankanna á Íslandi? ISG var alveg með á nótunum, enda alltaf að hitta Davíð á árinu. En getur verið að hún hafi leynt samflokksmenn sína því? Þar á ég sérstaklega við Björgvin G og Össur. Sá fyrrnefndi sagði í bloggi sínu þann 5. ágúst sl:

5 ágúst 2008

Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma.

Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Nætur-Össur (hikk) bloggar líka um allt mögulegt. Getur verið að ISG hafi hreinlega ekki viljað að þessir tveir málglöðu félagar vissu um ástandið, vegna þess að þeir eiga erfitt með þverrifuna?

Tja... maður spyr sig!

PS: Til ykkar heiladauðu sem lesið þetta og voruð að spá í hvað ég var að meina: Þetta er örugglega Davíð að kenna! Skreppið nú á smá mótmæli og komið svo við í Bónus á leiðinni heim og styrkið Jón Ásgeir.


mbl.is Bókunin frá Össuri komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og óánægjan vex líka...

Auðvitað vex óánægjan líka. Fólk sér á endanum í gegnum þá óábyrgu afstöðu sem stjórnarandstaðan hefur tekið með þessum endalausa kosningaáróðri Vinstri grænna... í örvæntingarfullri tilraun þeirra til að reyna að komast til valda, eftir meðbyr í skoðanakönnunum. Þetta er dæmigert fyrir tækifærisháttinn í þeim og má í raun líkja við útrásarvíkingana, sem sumir virðast hafa svifist einskis til að sópa til sín völdum og verðmætum, af því að tækifærið var til staðar. En svo fer Steingrímur J. yfir strikið einn góðan veðurdag og þetta hrynur allt aftur... jafn hratt og bankakerfið. Þannig er það nú bara með svona róttækan, tækifærissinnaðan (en tækifærissnauðan) jaðarflokk sem er dæmdur til eilífrar stjórnarandstöðu.

Það sem er hlægilegast er að sjá Framsókn gagga með þeim... flokk sem myndi að líkindum þurrkast út ef gengið yrði til kosninga núna. En þeir eru að reyna að mjólka þessa mótmælabylgju líka, greyin, sem og Frjálslyndir, sem segja bara það sem hinir í stjórnarandstöðunni segja.


mbl.is Ánægja með stjórnarandstöðu vex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjasta vopn lögreglunnar: Hlauppúkar

Þetta minnir óneitanlega á öskudaginn. Skringilega klædd ungmenni með skíðagleraugu og kúrekaklúta...! Besta vopn lögreglunnar hefði sennilega verið að kaupa Hlauppúka og bland í poka og kasta ofan af efri hæðum hússins á gangstéttina fyrir utan. Grísirnir þarna hefðu þotið út að ná sér í nammi og svo hefði verið hægt að læsa á meðan.

Já, mótmælendur þessa lands halda áfram að gera mann stoltan!


mbl.is Ráðist inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannvitsbrekkur í röðum

Já, þeir raða sér upp, gullkálfar þessa lands. Sturla trukkur, athyglis- og vænisjúkir rithöfundar hagfræðingar og aðrir gullmolar íslensks samtíma. Þessu fylgir svo skarinn af ungmennum, því annað fólk er upptekið af því að draga björg í bú á þessum tíma.
mbl.is Endurvakin sjálfstæðisbarátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband